Síðustu mínúturnar... Allt lagt í sölurnar... heyrst hefur af detox ferðum, sérfræðiráðgjöf frá atvinnufólki við uppsölur og fleira.
Ljóst er að flestir kúrarar munu vaka lengi frameftir og beita ýmsa bragða við léttun. Gera má ráð fyrir að dagurinn á morgun byrji einnig snemma og verði setið á vatnssalerninu eins lengi og hægt er og allt pressað út. Þá verður efalaust ltið við í sauna bæði í kvöld og fyrramáli.
Spennandi dagur framundan svo fylgist með þegar kúrar ráðast á það sem þá hefur langð til frá áramótum... sleikja punga..... þar sem þorramatur er í hádeginu á morgun.
Dagur 23... ýmislegt og missaurugt.
Added 27 January, 2011 from web
Í kjölfar dómaraskandals og handklæðafrétta komu þó ánægjulegar fréttir í dag þegar heyrðist í Andrési að hann væri ekki hættur... Hann hefði bara fleygt inn handklæðinu gangvart Brynjari.
Hann er þó ekki sá eini sem það gerir en heyrst hefur á nánast öllum kúrurum að þeir hugsi slíkt hið sama... nema einn... Sævar heldur uppi þrotlausri baráttu þrátt fyrir að hafa misst sig í tekexi og hrökkbrauði vegna mikils ógeðs á skyri. Hann stefnir á að jafna Brynjar þó ekki nema bara í hlutfallakeppinni.
Fróðlegt verður að sjá hvernig skyrstaðan verður í kæliskápnum í mötuneytinu í næstu viku... verður hreyft við einhverri dós eða renna þær allar út á síðasta söludegi... Vill einhver meira skyr?
Dagur 22 í... já í hverju... sjáum til
Added 27 January, 2011 from web
Nú styttist ískyggilega í annan endan... endalokin... og sumir eru alveg komnir á endalokin sjálfir...
Harðna þá leikar og veikindi hrjá. Fölleiki, slen, geispar og aðrir skrítnir hlutir hrjá mannskapinn. Svindl tíðrætt ásamt lokamöguleikum til að ná af sé nokkrum kílóum fyrir föstudag... aflimunarléttun hefur þó ekki komið upp á borð en við erum sannfærðir að þeir hugsa þó um það.
Kúrarar eru farnir að leita af fatnaði sem vigtar lítið líkt og g-string og netabol og þeir sem á slíkum fatnaði lumma er bent á að hafa samband við Brynjar hið fyrsta svo hann geti æft sig.
Dagur 21 í mynd og hljóði... fyrsta fjarviðtalið...
Added 26 January, 2011 from web
Fiskisögur fljúga... breytingar gerast... hvað, hvenær, hver og hversvegna?
Kúrinn hefur verið styttur og mun klárast á hádegi, föstudaginn 28. janúar í stað 31. janúar. Hver ástæðan er fæst ekki almennilega uppgefið en gert er ráð fyrir að hádegismaturinn á föstudaginn verði voldugur og svo er víst bjór og keiluboð hjá fyrirtækinu með viðskiptavinum um kvöldið... þar er ástæðan líklega komin... bjór og saltstangir...
En ein af þeim furðusögum sem heyrist er að einhverjir kúrarar hafi gefið upp öndina... já eða bara kolvetnin og ákveðið að hætta þar sem þeir ættu ekki sjéns í megrunarfrömuðinn Brynjar. Þetta fæst þó væntanlega betur staðfest á morgun og munum við leitast við að fá sem bestu og ólygnustu upplýsingar um málið. Munum samt krydda það pínu, ekki ljúga... bara hagræða sannleikanum.
Dagur 20... Drotningarviðtal...
Added 25 January, 2011 from web
Þá er þriðja vikan á enda runnin og viktunardagur. Sumir eru hræddir við viktina en aðrir ganga kokhraustir til verks handvissir um að þeir séu að rokka.
Samanlagt þyngdartap kúrara eftir þriðju viku er 7,8kg. Og skilur 1,8kg. að þann sem misti mest og minnst. Þetta er aðeins hagara þyngdartap en í fyrstu viku en þó meira en í annari vikunni og tal sumra um að þetta sé langhlaup á kannski svolítið rétt á sér.
En þar sem þetta er ekki bara keppni um hver tapar flestum kílóum heldur hver tapar hlutfallslega mest þá eru hér upplýsingar um hlutfallastöðuna líka:
Andrés -1,6kg (-4,4kg uppsafnað) -4,25%
Arnar -1,7kg (-4,6kg uppsafnað) -4,23%
Brynjar -1,8kg (-7,5kg uppsafnað) -7,65%
Guðbrandur -1.0kg (-3,7kg uppsafnað) -3,15%
Sævar -1,7kg (-5,7kg uppsafnað) -6,60%
En sem komið er stendur Brynjar upp úr en stutt er í Sævar og því um spennandi viku framundan að ræða.
Dagur 19 í myndmáli... viktun, ræktin og fl...
Added 23 January, 2011 from web
Mikil spenna í loftinu því það er viktun á morgun... Hver er maðurinn og hvað er mikið horfið af honum?
Stuðningsmenn Kolvetniskúrara hafa reynt að verða sér út um myndefni á hinn ýmsa máta, með upptökum á GSM símum, vefmyndavélum og fleiru. Nýjasta vélin sem tekin var í notkun til upptöku var vefmyndavélin hans Brynjars en hann tók lengi vel ekki eftir því að hún var nú tengd við aðra tölvu sem tók upp allt sem fram fór... og komu þá ýmis kurl til grafar... leggst það illa í kúrara?
Dagur 18... leyndarmál koma í ljós:
Added 21 January, 2011 from web
Svangur, svagur, svangur, svangur, svangur... það er nánast það eina sem heyrist í þessum gaurum í dag. Þá langar í sveittan hamborgara með frönskum og sósu... Maður finnur keiminn í munninummmmmmmmmmmmm
Aðspurðir eru það þó kartöflur sem kúrarar sakna einna mest... Það hljómar líka einkennilega að heyra í fullorðnum mönnum tala um hvað þá langar í gulrót og tómat...
Dagur 17, stuttur, snarpur... en sumir með ljósin kveikt en engin heima...
Added 19 January, 2011 from web
Mjög furðulegur dagur í dag... Kúrara hafa lagst í miklar pælingar hvernig Binni fer að þessu. Þeir hafa einnig fengið utanaðkomandi sem innanaðkomandi aðstoð og hefur Köning Óli verið þeim innan handar. Það hefur þó ekki reynst þeim vel og hafa þeir hver í sínu lagi og stundum nokkrir saman leitað beint til afreksmannsins, síns helsta samkeppnisaðila, hvernig fara á að þessu.
Geðveikishlátur glymur um Höfðabakkan, hótanir hafa flogið, tár fallið og skjálfandi kúrara hafa fundist úti í horni... ekki gott að sjá hvar þetta allt endar.
Sá litli matur sem innfyrir kúrara varir fer er yfirleitt þess eðlis að honum er pissað en ekki skilað á annan máta... nema til baka upp og í postulínið...
Dagur 16... já...
Added 19 January, 2011 from web
Eftir helgarfríið mættu kúrarar tvíefldir til vinnu,búnir að jafna sig eftir mælingasjokk föstudagsins og allir staðfastir í að láta Brynjar ekki hafa þetta svona auðveldlega. Hvaða leið þeir ætla til þess er óvist en ýmsar samsæriskenningar eru í gangi. Kúrarar ætla allavega að taka á því...
Rætt er hvort eigi að lengja kúrinn um eina viku eða stytta um 3 daga. Ástæður eru annarsvegar deila um hvort þetta eigi að vera 4 vikur eða 4 mælingar eftir hverja viku. Mæling á mánudegi vs. mæling á föstudegi. Samningaviðræður hafa meira að segja staðið yfir og boðin hafa verið 0,5 kg. í greiðslu, þ.e. draga megi 0,5kg. af þeim sem vilja vera lengur ef kúrinn yrði styttur. Aðrir hafa boðist til að bæta á sig 0,5kg á sama máta. Þetta er gríðarspennandi og spurning hvort einhver WIN/WIN niðurstaðan næst... ATH ekki er átt við WINDOWS...
Dagur 15... silly dagur...
Added 17 January, 2011 from web
Nú er vinnuvika 2 að lokum komin og langþráð viktun að skella á ásamt kolvetnisfylleríi um helgina... eða hvað. Hver er sjálfum sér næstur í kúrnum þessa dagana og engin annars bróðir. Kolvetnissnauður matur innan veggja fyrirtækisins er uppurinn og kúrarar komnir í vandræði. Janfvel hefur heyrst að einhverjir kúrarar lummi á snauða matnum þar sem hinir ekki sjá til.
En viktin var ekki flúin þó sumir reyndu að nýta allan þann tíma sem þeir mest máttu til að losa fyrir viktun og mættu ekki fyrr en eftir hádegi. Aðrir voru búnir að fjarlæga málmtölur, rennilása og annað þyngjandi sem finna má á ýmsum fatnaði.
Eftir viktun er ljóst að þrátt fyrir yfirlýsingar um innbyrðingu mikils magns kolvetnis er Brynjar að stinga aðra kúrara af í þyngdartapi og hefur nú misst alls 5,7kg. á tveimur vikum og er það um 1,7kg. meira en sá næsti á eftir, Sævar.
Tölur vikunnar:
Andrés -0,4 (-2,8kg uppsafnað)
Arnar -0,6 (-2,9kg uppsafnað)
Brynjar -2,9 (-5,7kg uppsafnað)
Guðbrandur -0,7 (-2,7kg uppsafnað)
Sævar -2 (-4kg uppsafnað)
Þá er hér dagur 12 í máli og mynd, í lengri kanntinum:
Þé er rétta að minna á hvað mikið er eftir af kúrnum:
Added 16 January, 2011 from web